Forsíða > Vefverslun > Fix-a-leak
Forsíða > Vefverslun > Fix-a-leak
FIX-A-LEAK – viðgerðarefni
Vökvi sem er hellt í vatnið í nuddpottum til að loka sprungum og loka þannig fyrir litla leka.
Getur oft komið í veg fyrir erfiðar viðgerðir með einföldum hætti.
FIX-A-LEAK fyrir potta getur lokað allt að 3mm breiðum holum og sprungum. Varanlega.
Notkunarleiðbeiningar:
Hristið vel fyrir notkun
1. Takið síur úr pottinum áður en FIX-A-LEAK er sett í vatnið.
2. Hafið dælur í gangi og hellið FIX-A-LEAK hægt í síuhúsið eða í annað vatnsinntak.
3. FIX-A-LEAK er þungt og sekkur fljótt til botns. Það þarf að hræra upp botnfallinu á 4-6 tíma fresti á meðan dælur hringrása vatninu.
4. Haldið áfram að hræra upp efninu með dælur í gangi þangað til lekinn lokast.
5. Eftir að lekinn hefur verið stöðvaður þarf efnið að fá að sitja í 24-48 klst.
6. Endurtakið eftir þörfum.
Þegar tekist hefur að stöðva lekann og minnst sólarhringur er liðinn þarf að tæma pottinn, þurrka efnið af skelinni og leyfa viðgerðinni að þorna í 4-5 daga.
5.844kr.